Spekingar Spjalla standa í stórræðum og hafa flutt sig um set og komnir með nýja hýsingu. Við biðjum ykkur hlustendur góðir um að smella á leitargluggann í hlaðvarpsforritinu og finna Spekinga Spjalla aftur. Þá kemur þátturinn reyndar upp tvisvar sinnum en látið ekki fögur andlitin á myndunum blekkja ykkur – þátturinn sem þið viljið subscribe-a […]
Handknattleiks-frömuðurinn Patrekur Jóhannesson er gestur Spekinga þessa vikuna. Frábær leikmaður og enn betri þjálfari. Patrekur hefur iðkað handknattleik sem leikmaður og þjálfari á hæsta stigi með góðum árangri. Nú er hann í vígahug og gerir hann atlögu að Íslandsmeistaratitlinum með Selfossi áður en hann færir sig yfir til Skjern í Danmörku í sumar. Við óskum […]
Frosta Logason þekkja allir, afburða gítarleikari sem snéri séri sé að þjóðmálum. Stýrir nú útvarpsþættinum Harmageddon með Mána Péturssyni, þar sem þjóðmálin eru rædd eins og þau eru.
Viðskipta- og athafnamaður sem vatt kvæði sínu í kross og hóf ritstörf. Ármann Reynisson er litríkur persónuleiki og brautryðjandi í öllu því sem hann tekur sér fyrir hendur. Ármann er gestur okkar þessa vikuna og við komum víða við. Ármann skrifar vinjettur og nítjánda bók hans kemur út í haust. Fyrri bækur hans má nálgast […]
Pétur Marinó Jónsson snýr aftur til Spekinga og fór yfir helstu atburði UFC frá desember sl. Nú bíður annað risastórt verkefni hjá Gunnari Nelson þann 16. mars nk. gegn Leon Edwards og við fórum að sjálfsögðu yfir það. Pétur Marinó er ritstjóri og eigandi MMA FRÉTTA , stjórnandi Tappvarpsins hlaðvarpsþáttar og stjórnar jafnframt Búrinu á […]
Héðinn Sveinbjörnsson er hress og skemmtilegur. Hann er einnig heimspekilega þenkjandi. Héðinn er stjórnandi þáttarins Koma svo! sem er pepp fyrir foreldra, fagfólk og aðra sem hafa áhuga á málefnum barna og ungmenna. Koma svo! hóf göngu sína í haust og hefur verið á Kjarnanum en er nú kominn í samstarf við Podcaststöðina. Hægt er […]
Spekingar mættu ofjarli sínum þessa vikuna þegar Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra mætti í heimsókn. Hæstvirtur ráðherra ber ekki bara langan titil heldur er nafn hennar næstum því lengra. Þórdís Kolbrún er eldklár, ótrúlega skemmtileg og hefur kennt okkur að ef hugur fylgir verki þá getum við öll náð langt. Af henni eigum við að læra […]
Ilmi Kristjánsdóttur er margt til lista lagt. Gríðarlega hæfileikarík leikkona og handritshöfundur og lætur auk þess til sín taka í þjóð- og velferðarmálum. Það er engin ófærð þegar Ilmur tekur að sér hlutina. Við hvetjum hlustendur til að læka og sub´skræba Podcaststöðina í hlaðvarpsforritum og á Facebook og Instagram (ZuckerbergsMiðlarnir).
YouTubeJón er mættur aftur. Hvað er að frétta af YouTube og hvað er að frétta af Jóni. Sævar Ríkharðsson var einnig með okkur og við fórum stóru málin.
Tómas Þór Þórðarson er gestur þáttarins þessa vikuna. Tómas Þór gefur Guðmundi Benediktssyni ekki þumlung eftir þegar kemur að fagurfræðum íþróttafréttamennskunnar. Matti og Tómas fóru yfir handboltann en settu svo fókusinn á Superbowl sem er handan við hornið. Við hvetjum hlustendur til að gerast áskrifendur að þættinum með því að ýta á “subscribe”. Það kostar […]