Í þættinum er fjallað um tónlist út frá hinum ýmsu sjónarhornum. Kafað verður djúpt ofan í hlutina en með léttleikan að vopni og fagmennsku í fyrirrúmi.
Í þessum lokaþætti Dagbókar Brjálæðingsins í bili klárum við umfjöllun okkar um sólóferil Bítlastrákanna. Macca á lokalagið en einnig gerum við upp sólóferlana og sitthvað fleira skemmtilegt
Ringo Starr. Hver elskar ekki Ringo? Lífsglaði, friðelskandi ástarpungurinn hefur dælt út sólóplötum síðustu 50 árin og í þessum þætti ætlum við að renna yfir ferilinn, fanga stemmninguna, elska og halda friðinn.
Í þessari viku eru 40 ár síðan John Lennon féll frá. Því er tilvalið að taka hann fyrir í þessum örðum hluta yfirferðar okkar um sóló bítla. Andfýlan er auðvitað á sínum stað og sitt sýnist hverjum.
Eftir allt of langt vetrarfrí mæta Brjálæðingurinn og tæknimaðurinn og rennitækla sinn stærsta loðfíl til þessa. Við erum að tala um hina “fjóru fræknu”, “The Fab Four”.Í þessum fyrsta hluta tökum við fyrir sólóferil George Harrison eða Gogga.
Í þessum seinni hluta af Júródagbókinni halda þau Nonni og Sunna áfram að fara yfir söguna og velja verstu og bestu lögin í sögu keppninnar
Það hlaut að koma að því! Júróloðfílinn var tæklaður og það var ekki átakalaust. Farið yfir söguna, talað um fíling og skipts hressilega á skoðunum. Andfílan fór upp í loft en allir sexý að lokum
Andfílan var slík í þessum þætti að það lá við yfirliði. Hart var tekist á, samstarfið hékk á bláþræði og enginn var að fíla sig...en samt allir í stuði
Þessi dagbók er í framsæknari kantinum. Við kíkjum aðeins á upphaf proggsins og reynum að útskýra stærstu spurningu alheimsins sem er: ,,Hvað er progg?" Andfýlan og almenn vitleysa verður auðvitað líka á sínum stað.
Eftir erfiða fæðingu tókst loksins að henda í þátt. Í þessum fyrrihluta ræðum við um upphaf gruggsins í rigningunni í Seattle og stiklum á stóru í sögu "big 4"
Stígið um borð í snekkjuna með okkur. Með í för eru Michael McDonald, Kenny Loggins, Christopher Cross og fleiri mjög mjúkir menn. Finnið hvernig vindurinn leikur um bringuhárin og njótið ferðarinnar.
Í þessum þætti af Dagbók brjálæðingsins skyggnumst við inn í senu sem margir vilja meina að sé besta undirsena metals, Nu metall. Jonathan Davis, Fred Durst og Kid Rock taka vel á móti ykkur...við biðjumst afsökunar á að hafa gleymt að spjalla um meistarana í Papa Roach.