Trúnó er podcast-þáttur Andlegu leiðarinnar þar sem Elín í öðru veldi tala við fólk frá öllum krókum og kimum samfélagsins um mannrækt og leiðir til þess að efla eigin hamingju.
María Thelma Smáradóttir, leikkona, leikskáld, ljóðahöfundur og brautryðjandi með meiru kíkti til Elínar Kristjáns í Trúnó og segir hlustendum frá leikferli sínum til 10 ára og ástríðu sem íslensk leikkona af asískum uppruna. Í þættinum talar María um mikilvægi þess að hafa trú á sjálfum sér, berjast fyrir draumunum sínum og vera þrautseigur.
María Thelma er mikil baráttukona sem veigrar sér ekki við að gefa í þó á móti blási. Ekki láta þennan podcast þátt fram hjá þér fara!
Fylgstu með Maríu Thelmu á:
Nældu þér í miða á „Velkomin heim“ Þjóðleikhúsinu (Síðustu sýningar 24. og 25. febrúar 2019)
Í fyrsta þætti Trúnó kemur Jón Magnús Arnarsson a.k.a. Vivid Brain og ræðir á persónulegum nótum um lífið og listina og andlega vegferð sína úr „sjálfsskipaðri eyðimerkurgöngu“.